Hún Ása Gunnur...
...átti afmæli í gær...
Í tilefni af því voru reykingar á skemtistöðum landsins bannaðar..
Til hamingju enn og aftur skvísa mín..
Löng helgi
..Og hvað geri ég... Eyði henni í að setja upp myspace.. Já já já ég veit ég er nölli..
Annars er svosum ekki mikið að frétta af mér frekar enn fyrri daginn.. Er orðin ágæt í fætinum.. Drullaðist meira að segja í ræktina með Hildi massa í gær.. Er ekki laust við að ég sé með pínu harðsperrur.. Þrátt fyrir afar slaka frammistöðu og jahh.. frekar mikla leti...
Endilega kíktu á speisið mitt og addaðu mér ef þú ert með svona síðu
Þar til næst..
Sí jú kúl pípúl... ;p
Eiki og félagar stóðu sig mjög vel..
Þó svo að tilætluðum árangri væri ekki náð.. Annars er þessi keppni nátturulega bara orðin að e-u gríni.. Óþarfi að fara e-að fleiri orðum um það...
Gleðilegan prófkjörsdag.. ![]()
Fór í bíó um helgina..
Sá Blades of glory.. Sem var bara hin ágætasta skemmtun verð ég að segja.. Að sjálfsögðu óttaleg steypa (enda svosum ekki við öðru að búast með Will Ferrell í broddi fylkingar).. Vel fyndin.. ![]()
Annars er það náttúrulega löngu vitað mál að ég er óttalegur gallagripur.. Fór til læknis á mánudag og í ljós kom að ég er með allt of háa rist.. Og vegna þessa er ég komin með bólgur í vöðvafestuna á vinstri fæti og hvorki get né má stíga í fótinn.. Þið getið rétt ímyndað ykkur gleðina á mínum bæ.. Letiblóðið ég veit fátt betra en að en að liggja uppi í sófa og gera ekki neitt.. Neeeema þegar að ég má mig ekki hreyfa.. Er búin að liggja í sófanum í aaaallan dag og langa út að labba.. Og ég er farin að skipuleggja ferðir í ræktina með Hildi (hef verið í duglegri kantinum við að safna spiki síðan um páska.. hrumph
) Þá er bara að vona að viljinn hverfi ekki með hækjunum!!!
Þetta á nú samt ekki að vera neitt stórmál.. Ég fæ bara inlegg og þetta tekur nokkra daga..
Jæja nóg í bili..
Lifið heil og sjáumst á sprettinum von bráðar..
Ok.. Þessi náttúrulega bara krútt sko...
Það er komið sumar..
Bráðum skín sólin allan sólahringinn, tréin laufgast, grasið grænkar og loftiið fyllist dásamlegum sumarangan.. ![]()
Gleðilegt sumar kæru vinir..!
Langaði
bara til að óska ykkur Gleðilegra páska..
Gullý mín til hamingju með afmælið hónen.. skemmtu þér vel í UK
Jæja gott fólk..
Þriðja tilraun til að koma þessu bloggi frá mér... kann greinilega ekkert á þetta og færslurnar eyðast út jafnóðum og ég reyni að bæta myndum inn á.. Þarf að læra á þetta dótarí áður en að geðheilsan hverfur mér á braut..
Allaveganna.. Tími til kominn að ég nennti að setjast við tölvuhræið..
Búin að breyta útlitinu á síðunni.. Hvernig finnst ykkur...?
Smartís og gullstafir... Getur ekki klikkað... Jahh ekki nema að ég haldi uppteknum hætti og bloggi ekkert..
Merkilegt að enn skuli fólk nenna að kíkja hér inn.. Takk fyrir það..![]()
Annars fer sól hækkandi og vor er í lofti.. Bíð með eftirvæntingu komu lóunnar.. Hún hefur látið í sér heyra á Hornafirði en vantar alveg að hún tísti í Elliðaárdalnum hér fyrir neðan mig...
Ekki hefur nú ýkja margt á daga mína drifið síðan að ég síðast bloggaði.. hef þó meðal annars:
) Það var alveg fáránlega skemmtilegt þar sem að allir sem einn tóku þemað það alvarlega að það hefði mátt opna Disney World í íbúðinni hjá Ingu Dóru..!!!
# Bætt við mig klukkustundar vinnu á degi hverjum.. mæti nú 9 í stað 10.. Það er bara fínt.. Það hefur enginn gott að því að sofa alltaf út![]()
# Verið hreint afskaplega pirruð á mars mánuði sem virtist aldrei ætla að renna sitt skeið... !
# Fagnað 1. apríl.. Lét samt engan hlaupa..
# Haft saumaklúbb og bakað eplapæ (hef aldrei áður bakað eplapæ)
# Farið í stórskemmtilega sveitaferð að Bifröst þar sem að virkudagsbyttunum tókst loksins að hafa ball um helgi..!! ![]()
# Horft á Borat... Hæ fæv...
# Farið í gítartíma.. Er komin langt á leið með það að verða snillingur...![]()
# Uppgötvað Quiznos... Þennan með kalkúni og guacamole...nammi namm...
# Lesið bókina um Bono.. hann er töffari...
# Lesið Konungsbók Arnaldar Indriða.. Hann klikkar ekki frekar en fyrri daginn...
# Farið í sund og út að labba..
# Kynnst nýju fólki..
# Grillað í góðu veðri.. Það er alveg að koma sumar...![]()
Allaveganna.. læt þetta duga í bili.. biðst innilegrar velvirðingar á bloggleysi.. lofa bótum og betrun...
Hafið það gott um páskana elskurnar..
Já það er satt...
Það er hægt að keppa í öllu...
http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2285

